Oerdoeg wrote on 11.04.2023 at 11:59:02:
Icelandic translation.
[quote]Hersöngur Frakka
Lag eftir I. Rouget de V Isle. (J. H., V.)
1. Fram til orustu ættjarðar niðjar!
Upp á vígbjartri herfrægðar stund!
Mót oss helkaldra harðstjórnar-
viðja Hefjast gunnfánar dreyrgir of grund ;
Heyrið vígdunur hrægrimmra fjanda;
Húsfeður yðar og niðja þeir
Að brytja niður bitrum geir
Búast óðir milli' yðar handa;
Því landar, fylkið fljótt!
Og fjandmenn höggvum skjótt!
Á storð, á storð sem steypiflóð
Skal streyma níðings blóð.
2. Yngri þjóðin skal vígi' yðar verja,
Er vorir frumherjar hníga í blóð,
Og finna valslóðir fallinna herja,
Og fylgja dæmi, er gáfu þeir þjóð.
Sælt er að lifa, en ljúfara' að falla
Liðnum með bræðrum; þeirra hefnd
Þér skuluð sjá af oss mun efnd,
Ella dauðir vér hnígum til vallar.
Því landar, fylkið fljótt!
Og fjandmenn höggvum skjótt!
Á storð, á storð
sem steypiflóð
Skal streyma níðingsblóð.
M. /., þýddi.
Source:
https://www.facebook.com/France.Islande/posts/2026555647393609/https://ia600700.us.archive.org/22/items/slensksngbk300sn00jnas/slensksngbk300sn00jnas.pdf
Íslensk Söngbók : 300 söngtextar med lagbodum (1915)
https://archive.org/stream/slensksngbk300sn00jnas/slensksngbk300sn00jnas_djvu.txt
Heyrið bænir, harðstjórar, gjalla,
hræðist og skjálfið, þér landráðamenn;
skjálfið; hin banvænu brögð yðar falla
bölsnúin yður um háls munu senn.
Gegn yður hvarvetna herþjóð er snúin
hetjur þó ungar falli í mold;
oss óðum vekur fósturfold
frækna sveit, er til vígs stendur búin.
(Viðlag)
5. Kjósið, Frakklands dáðrökku drengir
dörrum yðar maklegan stað
eirið þeim, sem ánauðin þrengir,
að ota gegn yður blóðugum nað,
rjóðið hjörinn í harðstjórans blóði,
hengið grimmlegan landráðadrótt,
og ólmum tígrum eyðið skjótt,
sem eta og helslíta brjóst yðar móður;
(Viðlag)
Ástin heilög ættjarðarbyggða,
efldu styrkleika hegnandi mund;
frelsisást, þú hin fegursta dyggða
forvígi sértu nú vígmóðri grund.
Sónhvellir herlúðrar sigurljóð kveði;
sigraðra fjanda náföl brá
vorn dýrðarljóma líti á,
er leiftrar oss frá dreyrugum beði;
(Viðlag)
7.
Yngri þjóðin skal vígi yðar verjar,
er vorir frumherjar hníga í blóð,
og finna valslóðir fallinna herja,
og fylgja dæmi er gáfu þeir þjóð;
sælt er að lifa en ljúfara að falla
liðnum með bræðrum, þeirra hefnd
þér skuluð sjá af oss mun efnd
ella dauðir vér hnígum til valla,
því landar fylkið fljótt
og fjandmenn höggvum skjótt;
á storð, á storð, sem steypiflóð
skal streyma níðingsblóð.